Veikleiki fyrir veikleika
Hver skráður veikleiki er prófaður aftur með sömu aðferð og sýndi hann upphaflega.
Þjónusta / 07 · Prófanir
Endurprófun svarar einni spurningu um hvern veikleika: er hann lagaður? Garmur endurprófar eigin niðurstöður og niðurstöður úr skýrslu annars prófara, að því gefnu að skýrslan lýsi hvernig veikleikinn var sýndur.
01 / Umfang
Hver skráður veikleiki er prófaður aftur með sömu aðferð og sýndi hann upphaflega.
Lagaður, ekki lagaður eða lagaður að hluta. Sönnun fylgir hverri niðurstöðu.
Endurprófun leitar ekki að nýjum veikleikum. Hún nær aðeins til þess sem skýrslan skráði.
02 / Reglur
Engin prófun hefst án hennar.
Prófað er það sem umfangið nefnir. Ekkert utan þess er snert.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
03 / Verkefnið
Lengd ræðst af stærð árásarflatarins sem er innan umfangs.
Endurprófun sem er innifalin í prófun frá Garmi stendur til boða í þrjá mánuði frá afhendingu skýrslunnar.
Engin verðskrá. Fast verðtilboð fylgir afmörkun.
04 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur05 / Hlíting
Niðurstöður úr þessari þjónustu eru að jafnaði notaðar sem gögn gagnvart þessum kröfum:
Styður við og leggur til gögn. Hvorki vottun né trygging fyrir hlítingu. Hvaða kröfur eiga við þig ræðst af þinni starfsemi.
06 / Framkvæmd

Andri Pétur Hafþórsson vinnur verkið sjálfur. Lead Auditor í ISO/IEC 27001, ISO/IEC 27701 og ISO/IEC 42001. Vottað af Mastermind Certifications.
Um Andra